Lukkupottur!

Þetta hlýtur að teljast góður dráttur fyrir íslenka knattspyrnuáhugamenn og ekki síður fyrir fjárhag KSÍ.  Danir eru eina Norðulandaþjóðin sem okkur hefur aldrei tekist að leggja að velli í knattspyrnu og hafa leikir gegn Dönum alltaf vakið eftirvæntingu og spennu þrátt fyrir að enn hafi ekki tekist að innbyrða langþráðan sigur. Norðmenn eru einnig aufúsugestir og  verðugir andstæðingar. Íslendingar lögðu þá að velli í vígsluleik Laugardalsvallar sumarið 1959. 1-0 sigur með glæsilegu skallamarki Ríkharðs Jónnsonar í einum eftirminnilegasta kappleik sem ég hef séð. Síðan höfum við náð nokkrum sinnum að sigra Norðmenn. Hinir léttleikandi Portúgalir með sjálfan Christiano Ronaldo innanborðs munu laða að knattspyrnuáhugamenn í þúsundatali á Laugardalsvöllin. Kýpurbúar eru hærra skrifaðir en við á blaðinu hjá FIFA, en við gætum haft betur gegn þeim á góðum degi. Spá mín er sú að Portúgalir og Danir fari upp úr riðlinum, Norðmenn hafni í þriðja sæti og Íslendingar og Kýpurbúar berjist hetjulega á botni riðilsins um fjórða sætið.
mbl.is Mæta Norðurlöndum og Portúgal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Já eru tvö lið sem komast áfram..Þetta er svo sannarlega lukkupottur fyrir Íslendinga..KSÍ virðist eiga nóg af aurum:)..Völlurinn verður fullur á hverjum leik:)Gleðilega hátíð:):)Kveðja Halldór

Halldór Jóhannsson, 7.2.2010 kl. 12:46

2 identicon

Satt segir þú Óttar. Við getum þó strítt Nojurunum. Höfum ágætis tak á þeim.

Flott að fá Portúgalina, hafa lengi verið eitt skemmtilegasta lið álfunnar að horfa á.

Það neikvæða við þennan drátt er hins vegar að við höfum ekki lent í 6 liða riðli. Okkur veitir ekki af einu skítaliði í viðbót til að ná inn einhverjum punktum, upp á styrkleikaflokkaröðun.

Ég ætla að leyfa mér bjartsýni og segja að við endum fyrir ofan Nojarana.

Einar K. Einarsson (IP-tala skráð) 7.2.2010 kl. 13:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband