29.7.2008 | 10:17
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra er til fyrirmyndar
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra er mikill fyrirmyndarmaður. Hann er ekki ekki aðeins vinnusamur ráðherra eins og alþjóð veit, heldur reynir hann jafnframt ávalt að leysa úr málum á jákvæðan hátt. Mágkona mín, sem undanfarin fjögur ár hefur látið drauma sína rætast og siglt á skútu með manni sínum um öll heimsins höf, þurfti að hafa samband við ráðuneytið út af vegabréfi sínu, hún sendi okkur hjónum eftirfarandi tölvupóst um samskipti sín við dómsmálaráðuneytið:
"Ég skrifaði Birni Bjarnasyni fyrirspurn varðandi aukavegabréf (mér hafði verið bent á að hafa samband við dómsmálaráðuneytið) og varð ekkert smáhissa þegar karl svaraði mér um hæl og það á sunnudegi.Það eru sko örugglega ekki mörg lönd í heiminum sem almennur þegn getur skrifað ráðherra og fengið persónulegt svar um hæl! Ég ætla að etja þetta í enska textann á síðunni okkar næst þegar ég skrifa of monta mifg af Birni!
Bestu kveðjur, Áslaug, Kári, Kata.
www.simnet.is/aoa"
Já það þarf ekki að spyrja af Birni Bjarnasyni, hann er engum líkur. Svona eiga sýslumenn að vera.
Athugasemdir
Ja, það er ekki sama hver það er. Mér skilst, að einhver Ramsey hafi verið að reyna að ná einhverskonar sambandi við téðan Björn, án teljandi árangurs.
kop, 6.8.2008 kl. 12:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.