28.3.2018 | 02:39
Metið er 31 mark, ekki 34 mörk.
Liðunum var ekki fjölgað heldur fækkað úr 22 í 20. Í 20 liða úrvalsdeild eru leiknar 38 umferðir og er markametið á einni leiktíð 31 mark, sameiginlega í eigu Alan Shearer, Cristiano Ronaldo og Luis Suares. Gamla metið í 22 liða deild, 42 umferðir, er aftur á móti 34 mörk sem þeir Alan Shearer og Andy Cole eiga saman.
Á góða möguleika að slá met | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.8.2010 | 14:32
Gengið framhjá
Eiður Smári ekki í landsliðshópnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.8.2010 | 13:58
Gengið framhjá
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.7.2010 | 16:03
Dr. Gunni í Árborg!
Dr. Gunnar I Birgisson á stóran þátt í að Kópavogur er eitt eftirsóttasta bæjarfélag landsins að búa í. Árborg fengi engan betri í verkefnið en þennan reynslubolta. Fyrir utan doktorsnafnbótina í verkfræði og áratuga reynslu af stjórnun bæjarfélags er hann bæði bráðgáfaður og skemmtilegur karl. Auvitað yrði það missir fyrir okkur Sjálfstæðismenn í Kópavogi að missa Gunnar úr bæjarstjórnarflokknum, en ég þykist vita að Gunnari finnist að kraftar sínir myndu nýtast betur í framkvæmdastjórasöðu bæjarfélagsins í Árborg heldur en í minnihltanum hérna í Kópavogi. Selfyssingar og nærsveitamenn mega hrósa happi nái fái þeir Dr. Gunna til starfans.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.5.2010 | 13:04
Villa upp á rúmar hundrað og sjö þúsund milljónir
Það eru þúsund milljónir í miljarði. Fimm milljónir danskar eru hundrað og átta milljónir níutíu og fimm þúsund íslenskar krónur skv. gengi dagsins. Fréttamaðurinn þarf að vanda sig betur næst:).
Tap á rekstri Eikar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.2.2010 | 12:32
Lukkupottur!
Mæta Norðurlöndum og Portúgal | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.6.2009 | 11:29
Sannleikurinn
Stendur við fyrri orð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.4.2009 | 12:40
Af hverju Sjálfstæðisflokkurinn?
Í kjölfar heimskreppunar og íslenska bankahrunsins, sem reið í garð á slíðastliðnu hausti og hjó harðar og dýpra hér en í öðrum löndum, gerðist það uppi á Íslandi, sem ekki hefur gerst hjá siðuðum þjóðum sem lent hafa í hremmingum efnahagskreppunnar, að vinstri menn nýttu sér stöðuna sem upp var komin til að slá pólitískar keilur með siðlausari og óprúttnari hætti en áður eru dæmi um í íslenskum stjórnmálum Úr ranni Samfylkingarinnar og VG hófust gegndarlausar ársir á Sjálfstæðisflokkinn og fyrrum formann flokksins Davíð Oddsson seðlabankastjóra. Í Sjálfstæðisflokknum og sérstaklega í Davð Oddssyni átti að kristallast ófarir Íslendiga í efnhagsmálum.
Helstu sérfræðingar kreppunnar, ef marka mátti athygli fréttamanna, trúbadorarnir Hörður Torfason og Bubbi Morthens, virtust kunna að greina vandann betur en flestir og fengu fjölmiðlapláss í takt. Hörður Torfason sem efndi til mótmælafunda á Austurvelli undir slagorðinu Raddir Þjóðarinnar fékk í byrjun lítinn hóp úr röðum ungliða vinstri grænna, og annarra er töldu breytinga þörf. Vinstrisinnað fjölmiðlafólk magnaði strax upp samkomurnar og beindu nú upptökuvélum að því sem fram fór á Ausurvelli. Þar braust út blint hatrið á varðhundum kerfisins" ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Davíð Oddssyni. Alþingi Íslendinga, sem beðið er fyrir í kirkjum landins á hverjum sunnudegi, var svívirt með eggjakasti og rúðubrotum, ráðist var að lögreglu og þingheimi gert ókleift að starfa. Væru fengnir álitsgjafar á ástandi efnahgs- og stjórnmála voru það helst vinstrisinnaðir stjórnmála- eða hagfræðingar og yfirleitt aldrei leiddar fram andstæðar skoaðanir.
Þær stigu síðan fram Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Jóhanna Sigurðardóttir og lýstu því yfir að forsendur endurreisnar efnhagsmála og áframhaldandi stjórnarsamvinnu væru: Í fyrsta lagi að reka Davíð Oddson úr seðlabankanum, síðan að sækja um EB aðild og taka upp evru! Forystu Sjálfstæðisflokksins tókst ekki nógu vel upp í fjölmiðlaslagnum, enda fjölmiðlabekkurinn þéttsetinn andstæðingum flokksins og þeim ekki sérlega umhugað að fletta ofan af þessum illa rökstuddu árðursbrögðum.
Ingibörg Sólrún vék til hliðar og Jóhanna Sigurðardóttir sté fram og tók við forystu í góðum takti við það sem á undan var gengið. Ný ríkisstjórn vinstrimanna var mynduð, maður úr norska verkamannaflokknum ráðinn seðlabankastjóri og frönsk kona úr vinstrisinnuðum græningjaflokki ráðin á ofurlaunum til að rannsaka bankahrunið.
Framhaldið varð hálfpartinn biblíusögulegt. Höður Torfason, sem þekkir líklega betur en flestir til eineltis, sigaði hjörð sinni uppí Svörtuloft eins og þeir kalla hús Seðlabankans og Bubbi kom og sló taktinn. Þrjótinn Davíð skyldi svæla út og með honum tvo virta hagfræðinga, þá fyrstu sem höfðu verið ráðnir seðlabankastjórar á faglegum forsendum eftir auglýsingu ( meira að segja af Sighvati Björgvinssyni ráðherra Alþýðuflokksins forvera Samfylkingarinnar). Davíð var náttúrulega helsti óvinur þjóðarinnar og fólk gat helst látið detta sér til hugar að hann hefði prívat og persónulega slegið fjórtánþúsund miljarða í útlöndum og neitaði að borga. Jón Ásgeir hinsvegar og aðrir útrásarvíkingar, hinir raunverulegu skuldarar sem djarfast höfðu teflt og skuldsett bankanna, voru svo nýbúnir að borga blaðamönnunum og túbadorunum launin að þeim varð að sjálfsögðu að hlífa við eineltinu. En það var farið heim til Davíðs að næturlagi og verið með háreysti og skrílslæti við hús hans.
Nú nokkrum dögum fyrir kosningar er staðn þessi: Stýrivextir seðlabankans eru 15,5%. Gengi krónunnar er veikara en nokkru sinni fyrr. Atvinnuleysi vex óðfluga og nálgast tuttuguþúsund manns og vinstristjórnin boðar aukin ríkisafskipti og skattahækkanir. Það er ekki að sjá að norska seðlabankastjóranum hafi tekist vel upp og er sannarlega ekki að gera betri hluti en þríeykið sem var látið víkja með ósæmilegum hætti. Það verður að nefna hér, að Norðmenn voru fljótir til og tryggðu sér starfskrafta Eiríks Guðnasonar og réðu hann sem sérfræðing til norska seðlabankans!
Franska konan er þegar búin að dæma útrásarvíkingana í Silfri Egils og hefur farið fram með þeim hætti, að svo gæti farið að vísa þyrfti málum þeirra frá vegna óhæfi hennar í málsmeðferðinni! Allt er þetta nú á sömu bókina lært. Það er farið fram af fumi og fáti í flestum málum og oftar en ekki látið stjórnast af pólitískum hvötum frekar en þeim hagsmunum sem í húfi eru hverju sinni.
Ráð vinstri stjórnarinnar gætu reynst íslenskri þjóð dýrkeypt, dýpkað kreppuna enn frekar og aukið vansæld fólksins í landinu.
Það er engum blöðum um það að fletta að forystu Sjálfstæðisflokksins var brugðið að missa Davíð Oddson úr brúnni. Geir Haarde, sá ljúfi drengur, reyndist ekki jafn einarður í viðskiptum sínum við andstæðingana og gaf þeim óþarfa færi á okkur. Bjarni Benediktsson er nýr formaður flokksins ungur og hugumstór og ætla ég að vitna til orða hans: Gleymum því ekki úr hverju hugsjónir sjálfstæðisstefnunnar eru gerðar. Þær er sprottnar úr íslenskum jarðvegi og innblásnar af anda sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Hugsjónirnar fela í sér þá grundvallartrú á fólkið sem landið byggir að því sé best treystandi til þess að marka sér leið í lífinu. Hagur okkar allra er að stjórnvöld standi vörð um það frelsi sem okkur var gefið við fæðingu, færi okkur öllum öryggi og tækifæri, og stuðli að sem mestum lífsgæðum. Með því sköpum við hagstæð skilyrði fyrir verðmætasköpun og atvinnuuppbyggingu og tryggjum að velferðin byggi á varanlegum grunni.
Undir þessi orð Bjarna Benediktssonar vil ég taka heilshugar. Á laugardaginn skulum við flykkja okkur um sjálfstæðisstefnuna. Sjálfstæðisflokkurinn einn flokka mun vísa okkur fram á veginn til lausnar þeim vanda sem þjóðin er i. Við verðum að vera fullkomlega heiðarleg og halda okkur við sannleikann í öllum málum. Það eru miklir erfiðleikar í efnahagsmálum. Aðalatriði er að halda fullveldi okkar og sjálfstæði, sýna ráðdeild og sparsemi, reyna að afla meira en við eyðum. Skapa atvinnuvegum skilyrði til að vaxa og dafna á nýjan leik með heilbrigðu bankakerfi og skýrum leikreglum. Höfnum skattpíningarstefnu og ríkisforsjá vinstri flokkanna. X-D
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2008 | 00:26
Förum varlega í lántökur, reynum að þreyja þorrann.
580 milljarða lán frá Bretum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
7.10.2008 | 23:53
Davíð Oddsson í Kastljósi sjónvarps 7. október 2008
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)